Fyrsta Mósebók 35:22-26
Tólf synir Jakobs og andlát Ísaks
Eitt sinn meðan Ísrael hafðist við í þessu byggðarlagi fór Rúben og lagðist með Bílu, hjákonu föður síns, og Ísrael komst að því.
Jakob átti tólf syni. Synir Leu voru Rúben, frumgetinn sonur Jakobs, Símeon, Leví, Júda, Íssakar og Sebúlon. Synir Rakelar voru Jósef og Benjamín. Synir Bílu, ambáttar Rakelar, voru Dan og Naftalí. Synir Silpu, ambáttar Leu, voru Gað og Asser. Þetta voru þeir synir sem Jakobi fæddust í Mesópótamíu.